Við smíðum skartgripi
Við smíðum skartgripi
til þess að mynda tengingar og skapa minningar
mjöll varð til úr ástríðu fyrir sköpun og handverki. Árið 2019 opnuðu Elísa Mjöll og Helgi vefverslunina mjöll.is og voru fyrstu giftingarhringarnir afgreiddir heima við stofuborðið. Sjö árum seinna er hlýjan og persónulega þjónustan enn hjartað í því sem við gerum, en nú á nýjum stað í Ármúla 42.
Skartgripirnir okkar einkennast af tímalausri hönnun og handsmíðuðum gæðum. Við smíðum úr .925 silfri, 14k gullfyllingu, 14k gulli & 14k hvítagulli.
Í mjöll má finna úrval af tímalausum skartgripum og vandaðri gjafavöru fyrir hversdaginn og tilefnin í lífinu.
Allir mjöll gripir eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar þar sem við leggjum ríka áherslu á gæði umfram magn.
mjöll gripirnir einkennast af tímalausri hönnun og eru smíðaðir með það í huga að standa af sér tískubylgjur.
Að velja giftingarhringa er stór stund. Við viljum að upplifunin sé róleg, persónuleg og eftirminnileg.