
Þetta einstaka hálsmen er samstarfsverkefni mjöll & Lilju Eivor.
"góð hugmynd" er setning sem Gunnar, sonur Lilju sagði oft og mörgum sinnum til þess að koma sínum hugmyndum í framkvæmd en hann sagði hana áður en einhver annar náði að mótmæla hugmyndunum hans. "Ég veit, eigum við að fá okkur ís?...góð hugmynd!"
Gunnar Unnsteinn lést í maí 2023 eftir skyndileg veikindi aðeins fjögurra ára gamall.
Hálsmenið er úr 14k gullfyllingu. Hægt er að velja um sídd.
Allur ágóði þessa hálsmens rennur til Minningarsjóðs Gunnars Unnsteins.
Minningarsjóðurinn verður nýttur til útgáfu barnabókar sem móðir hans er að skrifa um sýn Gunnars á Vináttu. Í framhaldinu verður sjóðurinn nýttur í verkefni tengd sorg og missi.